Algengar spurningar
Hvernig veit ég hvaða stærð ég á að velja?
Skoðaðu stærðartöfluna okkar – þar er líka lýst hvernig þú mælir þig. Ef þú ert á milli stærða eða óviss, sendu okkur skilaboð á WhatsApp eða línu á info@lvl.is og við aðstoðum þig gjarnan.
Get ég fengið fleiri myndir eða mál í cm?
Já! Sendu okkur skilaboð á WhatsApp eða á info@lvl.is og við sendum þér fleiri myndir og nákvæm mál, yfirleitt samdægurs.
Hvað kostar sendingin og hvað tekur hún langan tíma?
Pantanir sem berast fyrir kl. 18 á virkum dögum afhendum við Dropp sama dag.
- Sótt í verslun, Spöngin 33–39 – frítt
- Dropp-afhendingarstaður um allt land – 990 kr.
- Heimsending með Dropp á höfuðborgarsvæðinu – 1.300 kr.
- Frí sending á pöntunum yfir 20.000 kr.
Get ég skilað eða skipt vöru?
Já, þú hefur 14 daga skilarétt frá móttöku. Varan þarf að vera ónotuð, óþvegin og með öllum merkimiðum. Af hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila nærbuxum, body og sundfötum ef hreinlætisvörn hefur verið rofin. Viltu skipta um stærð? Hafðu samband og við græjum það. Nánar í skilmálum um skil.
Hvaðan koma vörurnar?
Undirfötin okkar eru frá lettnesku framleiðendunum VIPA og LAUMA, sem eru þekktir fyrir vönduð efni, góð snið og stærðir fyrir allar konur.
Hvernig get ég greitt?
Þú getur greitt með greiðslukorti (Visa og Mastercard) á öruggan hátt í gegnum Teya.
Er hægt að kaupa gjafakort?
Já! Gjafakortið fæst frá 5.000 kr. upp í 30.000 kr., er sent rafrænt og gildir í 4 ár.
Fæ ég afslátt?
Já! Skráðu þig á póstlistann og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun með kóðanum VELKOMIN10. Ef þú skráir þig á póstlistann þegar þú pantar færðu líka 10% afslátt af næstu pöntun með kóðanum TAKK10.
Ég finn ekki svarið hér
Sendu okkur skilaboð á WhatsApp eða á info@lvl.is. Við svörum fljótt!
